Hér verður leitast við að koma á framfæri tilkynningum um bilanir, fyrirhugaðar lokanir, breytinar og/eða truflanir á samböndum RHnet.
14:06 Viðgerð lokið -- samband kemst á aftur. 13:15 Sambandslaust við tengipunkt RHnet á Akreyri. Bæði aðalsamband og varasamband eru rofinn að því er virðist vegna bilunar í tengibúnaði í dælustöð Tengis við Þórunnarstræti. Unnið er að viðgerð.
12:00 Samband kemst á aftur. Bilun í netbúnaði hjá Vodafone.Fimmtudagur 24. nóvember 2011
20:14 Ítrekun á bilun við stjórnborð Vodafone 13:40 Aðalsamband um ljósleiðara Fjarska til Akureyrar óvirkt. Umferð á varasambandi um örbylgjukerfi.
Uppsetningu á tengipunkti RHnet í Hafnarfirði lokið. Tengipunktu er hýstur hjá ThorDC við Steinhellu og er tvítengdur á 10Gbs við 10G hring RHnet í Reykjavík. NHPC (Nordic High-Performace Computing Cluster) tengt RHnet.
Skipt um ljósbúnað á sambandi milli Sturlugötu 8 og Tæknigarðs á Giga-hring RHnet. 10G búnaður ekki skv. gæðastöðum. PeakOptical sett í staðinn.
12:30 Lokið við uppsetningu á 10G búnaði á Grensás. Unnið að útskiptingu á rúterbúnaði í tengipunkti RHnet á Grensás (hjá Orkustofnun) - búast má við smávægilegum truflunm milli kl 09:00 og 12:00.
Bilun í beini RHnet á Bústaðavegi (hjá Veðurstofu Íslands) olli sambandsleysi á RHnet milli kl 18:15 og 19:40. Vélbúnaður endurræstur.
Aðalsamband (10G) NORDUnet um DANICE til Reykjavíkur slitið síðan 05:23 í morgun vegna bilunar í ljósleiðara Mílu í Hafnarfirði. Umferð RHnet/NORDUnet beint um FARICE til London.
13:00 - 14:30 Unnið að uppfærslu á rúter í tengipunkti RHnet við Hringbraut (hjá Landspítala).
Umferð milli Hringbrautar og Sturlugötu beint um gigahring. Stuttar truflanir verða á
samböndum Landspítla, Krabbameinsfélags og Háskólans í Reykjavík.
Tekinn verður úr þjónustu C4908 sem þjónað hefur RHnet dyggilega í 8 ár:
Cisco Internetwork Operating System Software
IOS (tm) L3 Switch/Router Software (CAT2948G-IN-M), Version 12.0(10)W5(18g) RELEASE SOFTWARE
Copyright (c) 1986-2001 by cisco Systems, Inc.
Compiled Thu 19-Apr-01 12:09 by integ
Image text-base: 0x60010928, data-base: 0x605E6000
ROM: System Bootstrap, Version 12.0(7)W5(15a) RELEASE SOFTWARE
hringbraut uptime is 8 years, 31 weeks, 20 hours, 16 minutes
System restarted by power-on at 16:07:43 UTC Tue Jul 16 2002
System image file is "bootflash:cat2948g-in-mz.120-10.W5.18g.bin"
cisco Cat4908G (R5000) processor with 49152K/16384K bytes of memory.
R5000 processor, Implementation 35, Revision 2.1
Last reset from power-on
8 Gigabit Ethernet/IEEE 802.3z interface(s)
121K bytes of non-volatile configuration memory.
16384K bytes of processor board Boot flash (Read/Write)
Þriðjudagur 8. febrúar 2011
09:30 - 11:30 Unnið að uppfærslu á rúter í tengipunkti RHnet við Skúlagötu (hjá Hafró).
Umferð milli Skúlagötu og Tæknigarðs beint um gigahring, truflanir verða á
samböndum Hafró og Listaháskólans á tímabilinu.
Þriðjudagur 21. desember 2010
Samband Háskólans í Reykjavík virkjað í tengipunkti RHnet við Hringbraut.
HR nú tvítengdur við RHnet.
Mánudagur 20. desember 2010
16:04 Samband á FARICE komið í lag.
Samband NORDUnet til London slitið síðan 12:25. Svo virðist
sem tenging NORDUnet við FARICE rofin vegna slita á ljósleiðara
í Reykjavík.
Vegna slita á Greenland-Connect er RHnet nú eintengt við umheiminn.
Föstudagur 17. desember 2010
Greenland Connect slitin í sjó um 350m frá ströndinni í Nuuk.
Viðgerðarskip er væntanlegt á staðinn 3. janúar 2011 og búist er
við að viðgerð ljúki 7. janúar ef veður leyfir.
Mánudagur 13. desember 2010
Samband NORDUnet við Ameríku um Greenland-Connect sæstreng er slitið
vegna bilunar milli Nuuk á Grænlandi og Milton í Kanada. Umferð til
Norður Ameríku flutt um Evrópu.
Mánudagur 28. nóvember 2010
13:00 Lokið flutningi vefþjóns RHnet á nýjan vélbúnað. Nafnaþjónn
var settur upp í gærkvöldi.
Enn er sambandslaust við proxy- og usenet þjóna.
Laugardagur 27. nóvember 2010
Vélarbilun varð í tveimur þjónustuvélum RHnet í nótt. Sambandslaust
er því við vef-, proxy- og usenetþjóna RHnet. Einnig er annar af
tveimur nafnaþjónum óstarfhæfur.
Unnið er að viðgerð.
Föstudagur 26.nóvember 2010
Bilunar varð vart í Ameríkusambandi NORDUnet (milli St. Johns og
Reykjavíkur) seinni partinn í gær. Mikið pakkatap er á sambandinu
og hefur NORDUnet komist að því að eitt af fjórum undirsamböndum
er í ólagi.
Umferð til Ameríku beint um Evrópu á meðan viðgerð stendur.
Miðvikudagur 17. nóvember 2010
Vegna mistaka við raflagnavinnu í vélasal á Bústaðavegi missti rúter
RHnet þar allt afl milli kl. 12:08 og 12:50. Við það rofnaði samband RHnet
við Veðurstofu Íslands.
Fimmtudagur 28. október 2010
Bilun í ljósleiðara hjá Gagnaveitu veldur sliti á gigahringssambandi RHnet
milli Ofanleitis og Bústaðavegar. Umferð beint framhjá.
Miðvikudagur 22. september 2010
Rafmagn fór af miðbæ Reykjvíkur um kl 23:30 þriðjudagskvöld. Þetta
olli straumleysi í vélasal Hafrannsóknastofnunar þar sem tengipunktur
RHnet er staðsettur.
Sambandslaust við Hafrannsóknastofnun og tengdar stofnanir ásamt
Listaháskóla þar til rafmagni var komið á vélasal að nýju um kl 09:00
Mánudagur 20. september 2010
09:30 Tenging Háskóla Íslands uppfærð í 10Gbs og færð í tengipunkt RHnet
í Sturlugötu.
Fimmtudagur 5. ágúst 2010
22:00 Ameríkuumferð RHnet beint um Evrópu, framhjá biluðum búnaði
í New-York.
Vegna bilunar í NORDUnet beini í New-York eru verulegar tafir og vandmál
við umferð RHnet til Norður-Ameríku, sérstaklega til USA. Bilun veldur verulegu
pakkastærðarháðu pakkatapi á NA samböndum. Viðvarandi síðan kl 17:30 á miðvikudag.
Þriðjudagur 27. júlí 2010
10:30 Flutningum lokið.
Frá kl 09:00 til 11:00 verða áfram stuttar truflanir á samböndum RHnet í Tæknigarði,
framhald vinnu sem hófst í gær, mánudag.
Mánudagur 26. júlí 2010
Frá kl 09:00 til 11:00 verða einstaka truflanir á samböndum RHnet í Tæknigarði.
Unnið er að flutningi sambanda af eldri beinum RHnet í Tæknigarði og fyrsta
10G sambandið á ljósleiðarahring RHnet tekið í notkun milli Tæknigarðs og
Sturlugötu.
Þriðjudagur 30. mars 2010
Vegna bilunar í rúter hjá RHnet voru truflanir á samböndum RHnet við Háskóla
Íslands og við Keili á Suðurnesjum milli kl 10:45 og 11:15 í dag.
Miðvikudagur 24. mars 2010
Um kl 14:00 í dag var lokið við að færa umferð RHnet við NORDUnet
yfir á tvö 10Gbs sambönd. Þetta þýðir að burðargeta sambands RHnet við
NORDUnet verður 20Gbs.
Umferð verður ósamhverf fyrst um sinn, þar sem framhaldssambönd NORDUnet
til Danmerkur, Bretlands og Kanada eru ekki öll jafn stór.
Miðvikudagur 3. mars 2010
Sambandslaust við Google í u.þ.b klukkustund vegna mistaka
við leiðarstjórn hjá NORDUnet.
Mánudagur 25. janúar 2010
Sambandslaust við Krabbameinsfélag Íslands milli klukkan 13:40
og 16:07 vegna bilunar í ljósleiðarakerfi Gagnaveitu.
Föstudagur 20. nóvember 2009
15:00 Samband við ORF á nýjum stað komið á um safntengingu við Vodafone.
11:56 Tenging við ORF (Landbúnaðarháskólann) liggur niðri vegna flutninga.
Miðvikudagur 28. október 2009
NORDUnet hefur lokið tengingu á 2.5G OC48 straum frá tengipunkti
NORDUnet í Reykjavík, um FARICE streng til Skotlands og þaðan áfram
til London.
RHnet er nú tvítengt á ný við umheiminn.
Mánudagur 26. október 2009
19:30 Samband á aðalsambandi komið á.
Samband RHnet við Akureyri er rofið síðan kl 12:51 vegna bilunar í
ljósleiðarakerfi Fjarska við Geitháls.
Laugardagur 26. september 2009
Um kl 10:00 var umferð RHnet til NORDUnet flutt á 1Gb tengingu
við nýjan NORDUnet tengipunkt í Sturlugötu 8 í Reykjavík. Þessi
tengipunktur er síðan tengdur bakbeini NORDUnet á 10Gb STM-192 sambandi
um DANICE til Danmerkur.
2xSTM-1 sambönd RHnet á CANTAT-3 við NORDUnet hafa verið lögð niður, ásamt
STM-1 samband við TATA í New York.
Miðvikudagur 22. júlí 2009
18:28 Tengingar til NORDUnet um CANTAT-3 í lag. Bilun reyndist vera
í straumfæðingu strengsins frá Þýskalandi.
Öll sambönd RHnet um CANTAT-3 við umheiminn eru rofin síðan kl. 13:10
í dag. Ekki liggja fyrir öruggar upplýsingar um eðli bilunar en svo
virðist sem CANTAT-3 sé alveg óstarfhæfur, hugsanlega vegna straumleysis
í Þýskalandi.
Samband RHnet við umheiminn er nú á neyðartengingu um kerfi Vodafone, á
mjög minnkuðum afköstum.
Föstudagur 17. júlí 2009
Tengipunktar RHnet á Bifröst og á Hvanneyri sambandslausir eftir að
varafl þeirra rann út um kl. 00:46 og til kl. 05:19. Tilkynnt fyrirfram vegna
viðhalds RARIK.
Miðvikudagur 24. júní 2009
Samband við NORDUnet á hálfum afköstum frá kl 13:52 til 14:16 og
aftur frá 15:34 til 16:01 vegna bilunar í ljósleiðara
á Suðurlandi (ndn-rhnet).
Mánudagur 6. apríl 2009
19:41 Viðgerð lokið. Umferð á aðalsambandi.
14:08 Staðfest ljósleiðaraslit við Kolviðarhól. Áætlaður viðgerðatími
um fjórar klukkustundir.
Fjarski tilkynnir slit á ljósleiðara yfir Sprengisand til Akureyrar. Bilun
líklega við Kolviðarhól.
Samband RHnet við Akureyri því á varasambandi síðan kl 13:26 með minnkuðum afköstum.
Laugardagur 4. apríl 2009
Sambandslaust við Akureyri vegna rafmagnsleysis í tengipunkti RHnet
á Akureyri. Bæði aðalsamband og varasamband óvirk frá kl 11:39 til kl 12:19.
Föstudagur 27. mars 2009
10:27 Samband kemst á aftur, viðgerð lokið.
Annað af tveimur samböndum RHnet til NORDUnet (ndn-rhnet) rofið síðan
kl 07:36 í morgun. Um er að ræða ljósleiðaraslit á Laugarvatni, sem rýfur
tengingu frá Reykjavík til Vestmannaeyja.
Verulegar truflanir á útlandasambandi þar sem tengingar sem
eftir eru anna ekki álaginu.
Þriðjudagur 17. mars 2009
13:45 Vegna mannlegra mistaka hjá NORDUnet var rangur rúter stöðvaður
vegna viðhalds í Öreastad í Danmörku þar sem tengingar RHnet koma inn í NORDUnet.
Þetta olli slitum á báðum samböndum RHnet.
Bæði sambönd RHnet við NORDUnet óvirk frá 13:00 til kl 13:22. Eðli
og staðsetning bilunar ekki þekkt.
Þriðjudagur 10 mars 2009
17:45 Viðgerð lokið og samband kemst á aftur.
Annar af tveimur STM-1 straumum RHnet til NORDUnet er rofinn síðan
kl 15:09 í dag vegna ljósleiðaraslita á Hólmsheiði við Reykjavík
á leið til Vestmannaeyja. Verulegar truflanir eru á útlandasambandi
RHnet af þessum sökum, þar sem eftirlifandi tengingar anna ekki álagi.
Búist má við að viðgerð taki einhverjar klukkustundir.
Mánudagur 16. febrúar 2009
Verulegar truflanir urðu á öllum útlandasamböndum RHnet milli
kl 16:30 og 17:00 í dag. Þetta orsakaðist af gölluðum BGP skeytum
sem áttu upptök sín (fyrir slysni) frá ónefndum netþjónustuaðilum
í Tékklandi. Þessar skeytasendingar ollu núllstillingum á rútuskiptum
milli RHnet annars vegar og NORDUnet og TARA i New York annarsvegar.
Vegna elli hugbúnaðar í beinum RHnet urðu truflanir meiri en annars
hefði verið. Reynt hefur verið að koma í veg fyrir endurtekningu
á þessu vandmáli, þar til uppfærslu hugbúnaðar í beinum RHnet hefur
farið fram.
Mánudagur 29. desember 2008
Annar af tveimur STM-1 straumum RHnet til NORDUnet (#2) óvirkur síðan
kl 10:08 vegna ljósleiðaraslits í kerfi Gagnaveitu í Reykjavik.
Búist er við að viðgerð ljúki fyrir kl 23:00 -- Áhrif á
umferð eru enginn vegna lítils álags.
Mánudagur 1. desember 2008
Samband RHnet við Kennaraháskóla Íslands í Stakkahlíð lagt niður vegna
sameiningar KHI við Háskóla Íslands. Stakkahlíðarsvæði nú tengt neti HÍ
beint.
Laugardagur 29. nóvember 2008
14:25 Samband kemst á aftur -- Vodafone reyndist hafa fjarlægt
sambandið í miðbæjarsímstöð - fyrir mistök vegna ófullnægjandi
skráningar þeirra á notkun viðkomandi ljósleiðara.
Annað af tveimur tengingum (#2) RHnet við NORDUnet rofið
síðan kl 23:40 á föstudag. Engar upplýsingar um bilun frá
TATA né Vodafone.
Miðvikudagur 26. nóvember 2008
13:50 samband er komið á aftur.
Samband á RHnet við Landgræðslu ríkisins rofið síðan kl 13:10. Bilun
á IP neti Vodafone á Suðurlandi.
Laugardagur 15. nóvember 2008
Skilyrtri tilkynningu AS15474 til TATA Communications í New York hefur nú
verið breytt og varasamband RHnet við virkjað til að taka við yfirfalli af
NORDUnet samböndum sem undanfarnar vikur hafa verið yfirlestuð. Nokkurn tíma
mun taka að setja upp stýringar á umferð, þannig að viðunandi jöfnuður náist
milli sambandanna (þ.e. 310Mbs til NORDUnet og 155Mbs til New York).
Til að byrja með verður einungis umferð til og frá tengipunktum á austurströnd
Norður Ameríku veitt um þetta samband. Þetta er gert með því að breyta
tilkynningu AS15474 frá AS6453 samkvæmt RFC1997 og því háð því hvernig
rúterar þeirra túlka þessa leiðbeinandi parametra í BGP tilkynningum.
Öruggt er að einhverjar tengingar verði ósamhverfar meðan á þessu stendur.
Mánudagur 27. október 2008
20:06 Viðgerð á ljósleiðara milli Bústaðavegar og Ofanleitis lokið.
19:04 Samband til Akureyrar kemst á aftur. Samband milli Bústaðavegar
og Ofanleitis ennþá rofið. Engar tilkynningar frá Gagnaveitu um hvenær búist
er við að viðgerð þess ljúki.
14:00 Samkvæmt upplýsingum frá Fjarska má nú búast við að viðgerð ljúki
milli kl 16:30 og 17:00.
Samband RHnet við Akureyri rofið frá kl 10:40 -- samband á RHnet
hring í Reykjavík milli Bústaðavegar og Ofanleitis einnig rofið frá
sama tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjarska er ljósleiðari Gagnaveitu Reykjavíkur við
Sléttuveg í Reykjavík slitinn.
Tenging RHnet við Akureyri er á varasamband með verulega minkuðum afkstum.
Laugardagur 4. október 2008
00:17 Samband kemst á aftur.
Samband við NORDUnet á hálfum afköstum síðan kl 16:35 vegna bilunar í annari af tveimur
tengingum til Vestmannaeyja. Veldur töfum og truflunum á sambandi RHnet við
umheiminn vegna yfirálags á tengingu sem órofinn er.
Ekki liggja fyrir upplýsigar um eðli bilunar.
Miðvikudagur 1. október 2008
11:19 Samband RHnet við Akureyri lagfært.
09:32 Samband við NORDUnet og samband milli Grensáss og Keldnaholts koma upp,
samband til Akureyrar ennþá rofið.
09:00 Viðgerð tók lengri tíma en áætlað var, sambönd ennþá rofin.
Skipulögð viðgerð Gagnaveitu á ljósleiðurm við Bíldshöfða hóst kl 01:29, áætluð verklok
um kl 06:00.
Samband RHnet við Akureyri, annað af tveimur NORDUnet samböndum, og
tenging á gigahring milli Grensáss og Keldnaholts rofin.
Miðvikudagur 24. september 2008
23:32 Viðgerð lýkur, fullt samband kemst á aftur.
17:30 Bilun reynist við Selfoss, en engar frekari upplýsingar
um eðli eða viðgerðartíma liggja fyrir.
Önnur af tveimur tengingum RHnet við NORDUnet rofinn
frá kl 15:12. Virðist vera vegna ljósleiðarabilunar
milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
Þar sem burðargeta annarar tengingarinnar nægir hvergi nærri
fyrir umferð RHnet eru nú verulegar tafir og truflanir
á útlandasambandi RHnet.
Sjá
http://www.rhnet.is/cgi-bin/getstatus-gen/nordunet
Sunnudagur 21. september 2008
Bilun í öðrum af tveimur hring-rúterum RHnet í Tæknigarði olli
verulegum truflunum á tengingu Háskóla Íslands við RHnet frá kl
23:13 á laugardagskvöld. Einnig varð sambandslaust við Akamai stæður
og fjarfundakerfi.
Rúter kemst í lag um kl 11:30 en tenging HÍ verður færð annað.
Fimmtudagur 4. september 2008
Aflgjafi í tengipunkti Fjarska á Akureyri bilaði um kl 14:16 í dag.
Þetta olli algeru sambandsleysi á RHnet við
Akureyri (þar sem bæði aðalsamband og varasamband RHnet fara um þennan
punkt). Viðgerð lauk um kl 14:30.
Föstudagur 1. ágúst 2008
16:30 Skv upplýsingum frá OR var um bilun að ræða í tengivirki
í Höfðahverfi, sem olli báðum neðangreindum bilunum. Viðgerð
á NDN sambandi lokið, en ekki á RHnet hring.
Annað af tveimur STM-1 samböndum við NORDUnet rofið frá kl 14:13,
kemur upp aftur kl 15:20.
Samband á RHnet hring milli Grensáss og Keldnaholts slitið síðan
31/07 kl 17:30. Óveruleg áhrif á umferð, unnið er að greiningu, en
ljóst að ekki er um umfangsmikið ljósleiðaraslit að ræða.
Þriðjudagur 22. júlí 2008
Samband við RHnet tengipunkt í Ofanleiti (hjá Háskólanum í Reykjavík)
slitið frá kl 09:41 til 10:01 vegna rafmagstruflana í vélasal
HR. Samskonar truflanir aftur kl 12:22-12:42 og 13:09-13:17.
Unnið er að greiningu.
Miðvikudagur 11. júní 2008
19:05 Viðgerð lokið samband RHnet til Akureyrar komið á aftur.
Aðalsamband RHnet til Akureyrar er rofið vegna slits á ljósleiðara
Fjarka milli milli Kolviðarhóls og Írafossstöðvar.
Unnið er að viðgerð -- umferð til Akureyrar er á varasambandi með
verulega minkuðum afköstum.
Miðvikudagur 14. maí 2008
16:40 Samkvæmt upplýsingum frá OR slitnuðu tveir 96 leiðara strengir
við Bústaðaveg í dag. Unnið er að viðgerð og búist við að henni
ljúki um kl 02:00.
Beint samband á gigahring RHnet milli Ofanleitis (HR) og Keldnaholts er slitið
vegna bilunar í ljósleiðara (sennilega við Krókháls) síðan 14:48.
Laugardagur 5. apríl 2008
18:53 Viðgerð á sviss Fjarska lýkur. Samband kemst á aftur.
14:50 Samkvæmt síðustu upplýsingum frá Fjarska, virðist sem aflgjafi
í sviss hjá þeim hafi bilað. Reynt verður að skipta milli 16:00
og 17:00 í dag, en sé bilun víðtækari má búast við lengri tíma
þar til hægt verður að skipta um tækið í heild.
Sambandslaust er á RHnet við Akureyri, síðan kl 12:35 í dag.
Bæði aðalsamband um ljósleiðara Fjarska um hálendi, og varasamband
eru óvirk. Sambandslaust er því við Háskólann á Akureyri og við FSA.
Unnið er að greiningu, en vandamálið virðist liggja í rúter/sviss á
samböndum Fjarska í Dælustöð Hitaveitunnar.
Mánudagur 31. mars 2008
Vegna bilunar í rafkerfi OR er rafmagnslaust í tengipunkti RHnet á Keldnaholti
síðan kl 12:16.
Varaflgjafi RHnet rann út kl 13:57 og því er nú sambandslaust við LBHI á Keldnaholti
og við Nýsköpunarmiðstöð tengingar við Hvanneyri og Bifröst eru á varasamböndum.
Miðvikudagur 27. febrúar 2008
22:01 Samband milli Bústaðavegar og Ofanleitis kemst á.
21:17 Samband til Akureyrar kemst á.
16:45 Samkvæmt upplýsingum frá Fjarska/Gagnaveitu er slitinn 48-para strengur
við Sléttuveg í Reykjavík. Búast má við að viðgerðum ljúki fyrir kl 23:00 í kvöld.
Samband á ljóshring RHnet milli Bústaðavegar og Ofanleitis er rofið,
frá kl 15:07. Virðist vera vegna bilunar í ljósleiðara hjá Gagnaveitu.
Af sömu ástæðu er sambandslaust á aðalsambandi RHnet við Akureyri, umferð
þangað er beint um varasamband með verulega minnkuðum afköstum.
Miðvikudagur 30. janúar 2008
20:00 Samband #2 við NORDUnet hefur verið lagað, og umferð færð á það
á ný. Truflanir vegna óútskýrðar bilunar í burðarneti TDC í Danmörku.
Vegna mikilla truflana a öðru af tveimur samböndum RHnet við NORDUnet (#2)
hefur reynst nauðsynlegt að loka sambandinu alveg. Þessar bilanir hófust
19. janúar og hafa verið versna síðan. Nú er svo komið að sambandið er
ónothæft.
VNSL hefur ekki tekist að finna hvar bilunin liggur, og því
ekki tekist að laga vandamálið.
Samband við NORDUnet er því á hálfum afköstum með tilsvarandi töfum.
Mánudagur 21. janúar 2008
RHnet sambandslaust með öllu, bæði innan-nets og við umheiminn
milli 12:20 og 12:59 vegna bilunar í UPS hjá RHnet.
Föstudagur 18. janúar 2008
19:22 Viðgerð lýkur og samband kemst á aftur.
Annar af tveimur (#2) STM-1 straumum RHnet til NORDUnet er óvirkur. Bilun
varð kl 13:48 í ljósleiðara einhverstaðar í Þrengslum, og þar með ekkert samband við
CANTAT í Vestmannaeyjum. Viðgerðaflokkar hafa verið sendir af stað, en
ekki er vitað um eðili bilunar.
Umferð RHnet til NORDUnet er því aðeins á hálfum afköstum, með tilheyrandi
töfum.
Þriðjudagur 11. desember 2007
12:10 Samband kemst á aftur -- ekki vitað um eðli bilunar.
Annar af tveimur (#1) STM-1 straumum RHnet til NORDUnet er óvirkur
síðan kl 11:04. Burðargeta til NORDUnet því einugis 155Mbs og
geta menn því búist við verulegum töfum á umferð.
Þriðjudagur 4. desember 2007
Vegna bilunar á IP neti Símans slitnuðu samtengisambönd RHnet
um RIX við Símann, Skyrr og FSnet frá kl 09:32 til 10:43.
Umferð við þessa aðila beint um útlandsambönd á meðan.
Fimmtudagur 22. nóvember 2007
01:16 Viðgerð á ljósleiðara lokið ... öll sambönd RHnet í lagi.
Miðvikudagur 21. nóvember 2007
20:30 Bilun í ljósleiðara við Bíldshöfða reynist víðtækari en
áður var talið. Nú er ekki búist við að viðgerð ljúki fyrr en
um kl 07:00 í fyrramálið.
15:00 Skv. OR er bilun í 96 leiðara streng við Bíldshöfða, unnið
er að viðgerð og búist við að sambönd komist á aftur fyrir 21:00
í kvöld.
Ljósleiðari OR slitnaði kl 12:09 í dag, eftirfarandi sambönd
RHnet eru slitinn af þessum sökum:
- Aðalsamband RHnet við Akureyri (umferð á varasambandi, með minnkuðum
afköstum)
- Tenging á Gigahring milli Grensásvegar og Keldnaholts
(hefur ekki áhrif á umferð vegna hringtengingar)
- Annað af tveimur STM-1 samböndum við NORDUnet, tenging við NORDUnet
á hálfum afköstum.
Unnið er að viðgerð.
Fimmtudagur 27. september 2007
15:35 Samband við Akureyri kemst á aftur -- viðgerð lokið.
14:30 -- Viðgerð stendur ennþá yfir -- hefur tafist vegna
slæmra aðstæðna á verkstað. Fjarski tilkynnir að nú sé búist
við að viðgerð ljúki um kl 15:30.
09:30 Bilun í ljósleiðara Fjarska kl 08:11 veldur sambandsslitum á
aðalsambandi RHnet til Akureyrar. Umferð er á varasambandi með
minnkuðum afköstum. Unnið er að viðgerð (en skv. upplýsingum
frá Fjarska virðist sem leiðari hafi verði grafinn í sundur af
jarðvinnuvélum).
Miðvikudagur 18. júlí 2007
22:47 Samband við NORDUnet í lag.
Önnur af tveimur STM-1 línum RHnet rofinn síðan kl 17:09. Bilun í
ljósleiðara Símans milli Laugarvatns og Minni-Borgar í Grímsnesi veldur
sliti á sambandi á þessari línu til NORDUnet. Tenging við NORDUnet
á hálfum afköstum.
Föstudagur 6. júlí 2007
Unnið að endanlegri viðgerð á ljósleiðurum OR við Selfoss,
samband á STM-1 tengingu RHnet um kerfi Vodafone slitið
milli 01:06 og 05:41. Tenging við NORDUnet á minnkuðum afköstum.
Fimmtudagur 5. júlí 2007
Bilanir í ljósleiðarakerfi OR og Vodafone valda slitum
á öðru sambandni RHnet við NORDUnet milli 02:04 og 04:27
Tenging við NORDUnet á minnkuðum afköstum.
Miðvikudagur 4. júlí 2007
17:23 Samband kemst á aftur.
Önnur af tveimur STM-1 línum RHnet rofinn síðan kl 09:55. Bilun í
kerfi Vodafone milli Borgartúns og Selfoss. Unnið að viðgerð.
Fimmtudagur 7. júní 2007
09:27 Samband kemst á aftur. Skv. upplýsingum frá Vodafone höfðu þeir gleymt
að tengja þetta aftur.
Vegna uppfærslum Vodafone á STM-1 búnaði innanlands var tilkynnt um rof á
öðru af tveimur samböndum RHnet við NORDUnet milli kl 03 og 06 í nótt. Þessi
uppfærsla fór fram, milli kl 03:04 og 03:09, en samband fór niður aftur kl 03:25
og er ennþá rofið. Unnið er að því að kanna hvað fór úrskeiðis.
Sunnudagur 3. júní 2007
Klukkan 21:30 lýkur viðgerð á austurlegg CANTAT-3 sæstrengins
sambönd RHnet við NORDUnet komast á á ný og umferð færist af
varasamböndum á aðalsamband á fullum afköstum.
Föstudagur 25. maí 2007
10:00 Komið hefur í ljós að bilun liggur í CANTAT-3 sæstrengnum. Hann
er þó ennþá straumfæddur, þrátt fyrir bilun og varasamband RHnet til
New-York ennþá virkt.
Bæði sambönd RHnet við NORDUnet niðri síðan kl 04:21 í nótt. Unnið
er að viðgerð, en bilun er að öllum líkindum einhverstaðar í Danmörku.
Umferð á varasamböndum á minnkuðum afköstum.
Miðvikudagur 23. maí 2007
Tengipunktur RHnet við Bústaðaveg (hjá Veðurstofu Íslands)
rafmagnslaus milli kl 11:58 og 12:11 í dag, vegna mistaka
við vinnu í tengiskáp.
Veðurstofa sambandslaus við RHnet á meðan.
Fimmtudagur 3. maí 2007
Vegna uppfærslu á beinum í tengipunkti NORDUnet í Örestad í
Danmörku, fór umferð RHnet til NORDUnet um varasambönd
milli kl 07:24 og 07:32
Miðvikudagur 2 maí 2007
11:30 Samkvæmt upplýsingum frá Fjarska var bilun vegna
þess að straumlaust varð á hússveitu á Geithálsi en það
er fyrsti Hnútpunktur Fjarska á leiðinni út úr bænum.
11:10 Samband RHnet við Akureyri á varasambandi milli
kl 10:07 og 10:56 vegna bilunar í safntengingu Fjarska
til Akureyrar. Umferð á varasambandi á meðan á mjög
minnkuðum afköstum.
Mánudagur 30. apríl 2007
Vegna flutnings ljósleiðara á vegum Orkuveitu, var samband við
Hvanneyri og Bifröst á varasambandi frá kl 01:07 til kl 05:46.
Sunnudagur 22. apríl 2007
Tengingar RHnet á CANTAT-3 niðri frá kl 06:25 til 07:36, umferð
á varasambandi við Símann á meðan. Ekki liggja fyrir upplýsingar frá VNSL
eða NORDUnet um eðli þessarar bilunar.
Þriðjudagur 10. apríl 2007
15:43 Samband á CANTAT-3 komið á. Umferð á aðalsambandi.
14:21 Samband RHnet við NORDUnet um CANTAT-3 tekið niður vegna viðgerða á sæstreng.
Búist er við að þessi aðgerð taki u.þ.b klukkustund og þá verði reynt að straumfæða
strenginn á ný frá viðgerðarskipi og strengurinn verði þannig nothæfur til Evrópu
meðan á viðgerð stendur (sem getur tekið 5-7 daga).
Umferð RHnet við útlönd á varasambandi á meðan.
Fimmtudagur 5. apríl 2007
05:53 Samband kemst á aftur eftir viðgerð á ljósleiðara við Vesturlandsveg.
Umferð aftur kominn á aðalsambönd.
Miðvikudagur 4. apríl 2007
Tenging milli Keldnaholts og Hvanneyrar biluð síðan kl 19:45. Samkvæmt
upplýsingum frá Fjarska er um ljósleiðaraslit að ræða og unnið er að
viðgerð. Umferð til Bifrastar og Hvanneyrar á varasambandi.
Þriðjudagur 20. febrúar 2007
Tenging RHnet við RIX slitnaði í u.þ.b. 12 mín frá kl 10:50 til 11:02
vegna bilunar í rúter. Þetta olli truflunum á samböndum innanlands og
við fjarfundabúnað RHnet.
Miðvikudagur 7. febrúar 2007
Varasamband RHnet við New York endurtengt kl 17:41. Sambandið er nú
vera tengt framhjá biluðum vesturlegg CANTAT-3 um austurlegg til
Evrópu og þaðan til New York eftir öðrum streng.
Fimmtudagur 18. janúar 2007
14:44 Samband við NORDUnet komið á aftur um CANTAT-3, sem hefur verið
straumfæddur á ný. Þessi endurlífgun hans er tímabundin þar til viðgerð
getur hafist vegna veðurs.
Laugardagur 13. janúar 2007
14:36 Fyrirfram tilkynnt viðgerð á CANTAT-3 hafinn. Samböndum RHnet við
NORDUnet lokað, en umferð beint á varasambönd við Símann og Vodafone.
Samkvæmt áætlun VSNL International munu sambandsslit vara í 10 daga, eða
eins og fram kemur í tilkynningu þeirra:
Description: Repair operation of CANTAT-3 F1 Depowering the
cable for repair The ccts non restorable will
be down during all the activity .
Scheduled Planned Start Date (UTC): january 13, 2007 00:00:00
Scheduled Planned End Date (UTC): january 23, 2007 00:00:00
Outage window (DDD:HH:MM:SS): 010:00:00:00
Outage duration: 1x Equal 10 Days
Þriðjudagur 19. desember 2006
14:01 Samband við NORDUnet kemst á aftur -- viðgerð í Danmörku lokið.
10:50 Samkvæmt upplýsingum frá Símanum liggur bilun í sambandi RHnet við NORDUnet
milli Kolding og Kaupmannahafnar í Danmörku. Þessi bilun virðist því óháð
bilunum á CANTAT sem plaga hafa okkur síðustu daga. Því miður er varasamband
við New York ennþá óvirkt vegna CANTAT-3 bilunar, og RHnet því sambandslaust
með öllu.
09:52 Bæði sambönd RHnet til NORDUnet eru slitin. Varasamband óvirkt vegna
bilunar í CANTAT-3, því er RHnet nú án sambands við umheiminn. Orsök
bilunar óþekkt, en örugglega tengd bilun í CANTAT milli Kanada og Íslands.
Sunnudagur 17. desember 2006
19:27 Aðalsambönd við NORDUnet um Danmörk komin á. Varasamband við New-York
liggur ennþá niðri. Endanlegar skýringar ekki fengnar, en allt bendir til að
bilun hafi verið í straumfæðingu milli Vestmannaeyja og Pennant Point í Kanda.
16:00 Enn liggja ekki fyrir ákveðnar upplýsinar um eðli bilunar á CANTAT-3.
Beðið er eftir því að TeleGlobe og Síminn breyti straumfæðingu strengsins
þannig að hægt sé að koma upp öðrum hvorum legg sambandsins (þ.e. Ísland - New
York eða Ísland - Evrópa). Þangað til liggur samband RHnet við NORDUnet
niðri.
01:58 Truflanir raktar til líklegarar bilunar í einangrun einhverstaðar
milli Íslands og Kanada. TeleGlobe hefur ekki breytt straumfæðingu þannig
að leggur milli Íslands og Evrópu komist í lag, sennilega vegna þess að
vissa liggur ekki fyrir um eðli bilunar.
Laugardagur 16. desember 2006
Allt samband við NORDUnet liggur niðri síðan um kl 23:30 vegna bilunar
í CANTAT-3. Bæði aðalsambönd til Danmerkur og varasamband til New York
eru biluð.
Föstudagur 8. desember 2006
10Mbs varasamband til Akureyrar um net Fjarska virkjað, kemur í stað 2Mbs
frame-relay sambands á ATM neti Símans sem lagt verður niður. Varasambandið
tekið inn í tengipunkti RHnet við Bústaðaveg (hjá Veðurstofu Íslands).
Varasambönd til Bifrastar og Hvanneyrar einnig flutt þ.a. þau eru tekinn inn
á RHnet á sama stað.
Önnur af tveimur STM-1 tengingum RHnet (#2) við NORDUnet í sundur milli kl 01:32
og 03:24. Engar upplýsigar um bilun. Umferð á hinu sambandi á meðan.
Þriðjudagur 21. nóvember 2006
Ljósleiðararhingur RHnet rofinn kl 00:06 milli Grensáss og Keldnaholts
vegna viðhaldsvinnu OR.
Samband kemst aftur á um kl 04:50. Engar truflanir urðu á samböndum RHnet.
Sunnudagur 29. október 2006
16:23 RIX tenging kemst á aftur. Umferð milli RHnet og innlendra netþjónustuaðila
um útlandasamband á meðan.
13:40 Tenging RHnet við RIX slitnar vegna bilunar í rúter hjá RHnet. Ekki vitað
hvers eðlis bilun er.
Mánudagur 23. október 2006
Útskiptingu diska og endurbyggingu skráasvæða lýkur 17:00 þriðjudaginn
24. október.
FTP þjónn RHnet (ftp.rhnet.is) óstarfhæfur vegna diskabilunar síðan
kl 13:00 laugardaginn 21 október. Þrír diskar bilaðu samtímis og
því nægðu ekki tveir aukadiskar ("hot-spare").
Unnið er að viðgerð, en óvíst hvenær henni lýkur.
Fimmtudagur 5. oktober 2006
Samband RHnet við Akureyri rofið vegna vinnu Fjarska við ljósleiðarasamband.
Akureyrartenging á varasambandi milli kl 05:40 og 06:00 og aftur
milli kl 06:25 og 06:45.
Mánudagur 24. júlí 2006
Sambandslaust við tengipunkt RHnet í Ofanleiti (þar sem Háskólinn í Reykjavík
tengist) milli kl 20:00 og 20:40. Ástæða ekki þekkt, en rafmagnsleysi í
vélasal HR líklegast.
Fimmtudagur 13. júlí 2006
22:32 STM-1 til Danmerkur komið í lag.
21:52 Samband milli Tæknigarðs og Skúlagötu komið í lag.
Annað af tveimur STM-1 samböndun RHnet við NORDUnet niðri síðan kl 09:27. Bilun
orsakast af bilun í ljósleiðara á vegum OG Vodafone/Orkuveitu í Reykjavík.
Búist er við að viðgerð ljúki um kl 18:30.
Eitt STM-1 samband annar umferð RHnet eins og er svo að notendur ættu ekki að
verða varir við tafir á umferð.
Sama ljósleiðarabilun olli rofi á gigahring RHnet milli Tæknigarðs og Skúlagötu.
Þriðjudagur 27. júní 2006
Varasambandi við tengipunkt RHnet á Hvanneyri komið á um net Fjarska kl 16:15. Um er
að ræða 100Mbs rás milli Tæknigarðs og Hvanneyrar.
Fimmtudagur 22 júní 2006
Lokið við að koma fyrir tengipunkti RHnet við Bústaðaveg (í húsakynnum Veðurstofu Íslands).
Hringurinn var rofinn milli Stakkahlíðar og Ofanleitis um kl 14:30 og nýjum tengipunkti
komið fyrir þar á milli. Ekki urðu teljandi truflanir á samböndum á RHnet vegna þessa.
Þriðjudagur 13. júní 2006
Um kl 18:00 var lokið uppsetningu ljósleiðarahrings á Akureyri sem tengir
dælustöð Tengis ehf, Háskólann á Akureyri við Sólborg, og FSA við Eyrarveg
saman á 1Gbs samböndum.
Örstutt slit urðu á tengingum þessara aðila við RHnet meðan á flutningi sambanda
stóð.
Fimmtudagur 8. júní 2006
Tengipunktur RHnet við Höfðabakka lagður niður. Vegna þessa er ljóshringur
rofinn milli Grenasáss og Keldnaholts síðan 14:20.
Stutt slit varð kl 14:44 á sambandi RHnet við Fjárhagsbókhald hjá EJS vegna
rangra merkinga á ljósleiðurum.
Miðvikudagur 7. júní 2006
16:46 Samband milli Ofanleitis og Stakkhlíðar komið á aftur. Engar mælanlegar truflanir
á samböndum RHnet vegna þessa.
Ljóshringur RHnet í Reykjavík rofinn milli Ofanleitis (Háskólans í Reykjavík) og Stakkahlíðar
(Kennaraháskólans) kl 13:47 í dag. Unnið er að undibúningi tengingar Veðurstofu Íslands
inn a hringinn og búist við að ljósleiðaravinnu ljúki um kl 17:00.
Þriðjudagur 9. maí 2006
Sambönd RHnet við Hvanneyri og Bifröst flutt á ljósleiðara um kl 18:00 í dag.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur þegar flutt tengingu sína á þetta nýja samband
og með því 33-faldað tengihraða sinn við RHnet (úr 30Mbs í 1Gbps). Unnið er að
flutningi Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri í tengingu yfir þetta samband.
Föstudagur 5. maí 2006
Truflanir á jafningjasamböndum RHnet innanlands milli klukkan 12:30 og 12:50
vegna bilunar í beini hjá RHnet. Ástæða bilunar ófundin.
Föstudagur 7. apríl 2006
Breyting á tengingu RHnet til Vestmannaeyja lokið um kl 09:00.
Gerð vegna breytinga á sambandi hjá Og Vodafone.
Þriðjudagur 7. mars 2006
Vegna bilunar við uppfærslu beinis í Örestad, fóru bæði aðalsambönd
RHnet við NORDUnet niður kl 06.06 í morgun. Umferð var þegar beint á
varasamband um Vestmannaeyjar og New York. Viðgerð lauk um kl 08:38.
Fimmtudagur 5. janúar 2006
Báðar tengingar RHnet við NORDUnet í Örestad niðri
milli kl 01:11 og 02:54 í nótt. Umferð á varasambandi um
New York á meðan. Skýringar hafa ekki fengist á slitum, en
benda til bilunar hjá TDC í Danmörku.
fimmtudagur 17. nóvember 2005
Flutningi DK-enda NRODUnet samband frá Lyngby til Örestad
lauk um kl 08:55 í morgun. Flutningur tókst án truflana
á samböndum.
mánudagur 12. septermber 2005
13/09
Samband á báðum línum frá kl 09:24. Orsök bilunar óþekkt.
22:00
NORDUnet rúter nú í lagi, önnur af tveimur línum ennþá
í sundur.
18:30
Sambandslaust á aðalsambandi við NORDUnet, vegna bilunar
í annari af tveimur STM-1 línum og vegna bilunar í rúter
á fjarenda.
Samband á varaleið (með minnkuðum afköstum).
miðvikudagur 15. júní 2005
Sambandslaust á aðalsambandi við Akureyri milli kl 03:47
og 10:09 vegna bilunar í merkjabreytu á sambandi frá
dælustöð að Háskólanum á Akureyri. HA og FSA á varasambandi á meðan.
fimmtudagur 17. mars 2005
Tengipunktur RHnet á Hvanneyri lagður niður. Samband til Hvanneyrar
nú hluti af innra neti Landbúnaðarháskóla Íslands sem tengist RHnet
á Keldnaholti.
sunnudagur 13. mars 2005
Tengipunktur RHnet á Grensás niðri frá kl 10:16 til kl 11:08 vegna
flutnings innan húss hjá Orkustofnun. Beint samband við Fjársýslu ríkisins
ásamt sambandi við Orkustofnu niðri á meðan.
föstudagur 25. febrúar 2005
Aðalsamband til Akureyrar niðri milli kl 05:05 og 07:13 vegna viðhalds á
ljósleiðara. Sambönd til Akureyrar á "varasambandi". Skipt var um
spjald í beini RHnet sem stjórnar varasamböndum á fimmtudagskvöld og
varasambönd virkjuð aftur. Þessi sama bilun orsakaði truflanir á samböndum
RHnet við önnur net innanlands föstudag 18. feb og aftur þriðudag 22. feb.
miðvikudagur 23 febrúar 2005
Samband RHnet við NORDUnet stækkað í 310Mbs (2x155Mbs STM-1) kl 10:00
Umferð frá NORDUnet fór um New York milli kl 10 og 11 meðan á breytingu
stóð.
þriðjudagur 22. febrúar 2005
Sambandlausst við RIX vegna bilunar í rúter hjá RHnet milli kl. 9:30 og
11:00. Virðist vera vegna bilunar í ATM búnaði hjá RHnet. Slökkt hefur verið
á varasamöndum á meðan.
föstudagur 18. febrúar 2005
Sambandslaust við RIX (millitengingar innanlands) milli klukkan 19:50 og 20:50
í dag vegna bilunar í RIX beini RHnet. Umferð til og frá aðilum innanlands
við RHnet fór um útlandasambönd á meðan.
þriðjudagur 8. febrúar 2005
Samband til Akureyrar á varasambandi síðan 21:32 á mánudag. Bilun í
ljósbreytu á Akureyri orsakaði sambandsslit. Breyta endurræst kl
09:28.
Þriðjudagur 28. desember 2004
Rafmagn verður tekið af tengipunkti RHnet á Akureyri um kl 13:00 í dag
vegna breytinga á raflögnum. Sambandslaust við Háskólann á Akureyri
og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri á meðan.
Þriðjudagur 7. desember 2004
Skráasafn RHnet (ftp.rhnet.is) er niðri vegan viðtækrar
og alvarlegrar diskbilunar.
Unnið er að viðgerð, en ekki búist við að henni ljúki
fyrr en á morgun (miðvikudag).
Föstudagur 5. nóvember 2004
11:16 Straumur kemst á aftur í DK -- umferð á aðalsamband.
10:35 Samband við Danmörku slitið á ný -- enn vegna rafmagnstruflana
hjá UNI-C í Kaupmannahöfn. RHnet umferð á varasambandi.
Fimmtudagur 4. nóvember 2004
17:28 Rafmagn kemst á aftur, umferð á aðalsamband.
17:05 Danmörk nú alveg sambandslaus, eftir að varleið um Noreg fór niður.
Rafmagnslaust virðist vera í NORDUnet POP í Danmörku.
Aðalsamband RHnet við NORDUnet niðri frá kl 16:23 vegna bilunar í Danmörku.
Umferð á varasambandi við TeleGlobe um Vestmannaeyjar.
Mánudagur 25. október 2004
Skráageymsla RHnet (ftp.rhnet.is) óstarfhæf vegna diskbilunar frá kl 04:00 til
10:30. Vél endurræst, eðli bilunar óþekkt.
Mánudagur 27. september 2004
09:40 Skv. nýjustu upplýsingum var um að ræða bilun á austurlegg CANTAT-3.
Óútskýrð bilun í aðalsambandi til Danmerkur frá kl 4:46 til kl 08:26.
Umferð á varasambandi um New York á meðan.
Fimmtudagur 5. ágúst 2004
11:00 Samband norður komið í lag. Orsök bilunnar var rakin
til ljósbreytu á tengistað við Þórunnarstræti, Akureyri.
Breytan var endurræst og allt virðist virka eðlilega.
07:42 Samband við Akureyri fer niður, varasamband virkar ekki.
Mánudagur 26. júlí 2004
17:00 Samband komið í lag. Bilun virðist hafa verið í grunnkerfi
LÍ innanlands. Umferð aftur á aðalsambandi.
Bilun í SONET lagi á NORDUnet sambandi RHnet til Danmerkur hófst
kl 13:24 í dag. Unnið er að viðgerð, en samband er niðri eins og
er og umferð beint um varasamband frá Vestmannaeyjum til New York.
Laugardagur 12. júni 2004
18:49 Samband RHnet til New York komið í lag. Skv upplýsingum
frá TeleGlobe var um bilun í laser í endabúnaði CANTAT í Vestmannaeyjum
að ræða.
Varasamband RHnet um Vestmannaeyjar til New York bilar kl 14:12.
Hefur ekki áhrif á umferð á aðalsambandi.
Miðvikudagur 9. júni 2004
00:38 Vinnu lokið og samband kemst aftur á.
Rafmagn tekið að Grensás POP RHnet kl 20:35 vegna
vinnu við heimtaug.
Fimmtudagur 1. Apríl 2004
16:08 Viðgerð lokið.
10:50 Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Fjarska er búist við að
viðgerð ljúki um kl 14:00.
09:27 Samkæmt upplýsingum frá Fjarska var ljósleiðarastrengur við Háskólann
grafinn í sundur. Unnið er að viðgerð, en ekki búist við að henni ljúki
fyrr en í kvöld.
08:51 Sambandslaust við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og tengipunktur RHnet
á Akureyri á varasambandi. Virðist vera vegna bilunar í ljósleiðurum út frá
Háskólanum á Akureyri.
Miðvikudagur 28. janúar 2004
Truflanir á samböndum Fjarska á Vesturlandi síðan á miðnætti. Unnið er
að viðgerð.
Sunnudagur 18. janúar 2004
16:55 samband kemst á aftur eftir að loopbak á móti RHnet og NORDUnet
er sett á og tekið af aftur. Virðist hafa verið SONET protokol vandmál milli
beina á endum sambandsins.
Samband slitið við NORDUnet síðan kl 12:30. Eðli bilunar óþekkt.
Þriðjudagur 13. janúar 2004
13:37 Samband kemst á aftur. Truflun orsakaðist af straumleysisslysi meðan
ótilkynntar breytingar stóðu yfir hjá UNI-C í Danmörku.
Samband RHnet við NORDUnet (STM-1) er slitið síðan kl 13:11 í dag. Ekki
vitað hvers eðlis bilun er.
Miðvikudagur 5. nóvember 2003
20:45 Sambönd á Bifröst og Hvanneyri í lag.
Bilun í burðarörbylgju á Bifröst og Hvanneyri -- á varasambandi frá
kl 16:30. Ekki vitað um stöðu viðgerða á þessu.
Samband við NORDUnet slitnar kl 01:33 vegna bilunar í CANTAT, kemst á
aftur kl 04:39. Ekki vitað hver bilun var.
Miðvikudagur 29. október 2003
Um kl 09:45 í morgun var grafinn í sundur ljósleiðari Fjarska til
Akureyrar. Við það var öll umferð leiðarans flutt yfir á varasamband
á vegum Fjarska, en það samband annar ekki allri umferðinni.
Vitað er hvar bilunin er og búist við að viðgerð taki nokkurar
klukkustundir.
Þriðjudagur 23. september 2003
15:40 Samband við NORDUnet kemst á aftur, um leið og rafmagn kemst á í Lyngby
og hjá UNI-C.
11:20 Skv. áreiðanlegum heimildum er um að ræða útbreitt rafmagnsleysi í DK. Sjá
frétt á mbl.is um víðtækt rafmagnsleysi í Danmörku vegna vetrarstorma.
11:10 Bilun rakin til Danmerkur (Blabjerg eða Lyngby). Unnið er að viðgerð.
11:00 Fyrir liggur að STM-1 sambandið er slitið, og að ekki er um CANTAT-3 bilun
að ræða (sem betur fer). Unnið er að bilanaleit frá báðum endum.
Samband RHnet við NORDUnet slitið kl 10:38. Ekki liggja fyrir upplýsingar um
ástæðu slits.
Laugardagur 20. september 2003
Viðgerð lýkur sunnudag 21. september kl 16:20 en ekki tókst að ljúka
viðgerð fyrr vegna veðurs. Eðli bilunar óþekkt.
Bilun í örbylgjusambandi um kl 19:00 veldur svo til algerum
sambandsslitum á Bifröst og Hvanneyri.
Fimmtudagur 4. september 2003
23:15 truflunum lýkur. Festingar á loftentum ekki nógu traustar
þannig að vindáhrif verða of mikil.
Miklar truflanir hófust um kl 17:30 á samböndum RHnet á Bifröst
og Hvanneyri. Samkvæmt upplýsingum frá Fjarska er orsakanna
líklega að leita í veðuráhrifum a örbylgjusambönd til þessara
staða.
Fimmtudagur 24. júlí 2003
15:12 Samband til Akureyrar komið í lag.
09:58 Bilun hefur fundist á ljósleiðara Fjarska við Vatnsfell
(ofan við Burfellsvirkjun). Þar voru menn við jarðvegsvinnu
og er talið að ljósleiðarinn hafi farið í sundur. Menn frá
Ljósvirkja eru á leið á staðinn.
Bilun í ljósleiðarasambandi til Akureyrar kl 09:00 í morgun.
Þar með er tenging RHnet til Akureyrar (Háskólans á Akureyri
og Fjórðungssjúkrahúss) á 2Mbs varasambandi.
Unnið er að því að finna bilun.
Þriðjudagur 27. maí 2003
12:10 samband kemst á aftur milli Stakkahlíðar og Ofanleitis.
Skv. upplýsingum frá Ljósvirkja var ljósleiðarinn grafinn í sundur af aðilum
sem voru í jarðvegsframkæmdum án þess að kynna sér teikningar. Verið er
að vinna að viðgerð á þessu sambandi.
Enn bilar ljósleiðarasamband milli Stakkahlíðar og Ofanleitis. Sambandið slitnaði
kl 18:30 í gær en ekki liggja fyrir upplýsingar um eðli þessarar bilunar.
Þriðjudagur 29. apríl 2003
13:21 Samband milli Stakkahlíðar og Ofanleitis kemst á að nýju. Röng
tenging sem gerð var í nótt leiðrétt af Ljósvirkja.
10:00
Skv upplýsingum frá Línu.Net er OR að vinna í málinu.
Samband milli Stakkhlíðar og Hringbrautar kemst á kl 03:12 og
þar með KHÍ í samband við RHnet. Enn er sambandslaust milli Stakkahlíðar
og Ofanleitis.
Sambandslaust við Stakkahlíð (KHÍ) frá kl 00:10 vegna fyrirfram
ákveðinnar vinnu Orkuveitu/LínuNet við ljósleiðara. RHnet var ekki
látið vita um þetta fyrirfram og þvi voru ekki sendar út tilkynningar
um fyrirhugaða lokun.
Föstudagur 14. mars 2003
Rafmagn kemst á aftur kl 16:15 og þar með samband til OS
og FJB
Sambandslaust við Grenásás-POP RHnet (þar með Orkustofnun
og Fjárhagsbókhald) síðan kl 14:38. Rafmagnslaust er í hverfinu
en búist er við að viðgerð taki 1-2 klukkustundir.
Mánudagur 24. febrúar 2003
Samband RHnet við NORDUnet niðri frá kl 07:03 til kl 07:07 vegna
flutnings á heimtaug á vegum TDC í tengipunkti RHnet við NORDUnet
í Lyngby í Danmörku.
Mánudagur 6. janúar 2003
Samband RHnet við NORDUnet var flutt á nýtt STM-1 (155Mbs) POS
samband við NORDUnet POP í Lyngby kl 16:40 í dag.
Fimmtudagur 12. desember
06:30 Beint samband kemst á. Galli í beiningu á viðtökurúter
RHnet í Danmörku orsakaði sambandsleysi.
Miðvikudagur 11. desember
Beint samband RHnet við NORDUnet slitnar kl 22:30 vegna viðgerða
í Danmörku. Umferð á varasambandi LÍ.
Fimmtudagur 5. desember
20:30 Proxy þjónn RHnet kemur upp aftur.
Proxy þjónn RHnet tekinn niður kl 16:00 vegna stækkunar á diskum. Bilun
kom í ljós í vélinni við þetta svo að óvist er hvenær þessi þjónusta
kemst á aftur.
Miðvikudagur 4. desember
Samband á RHnet við NORDUnet, við landsbyggðina og HÍ slitnar vegna
rafmagnsvandræða í vélasal RHnet. Vegna breytinga á rafmagnsfæðingu
var tilkynnt um 5mín rof á rafmagni. Þetta tók hins vegar mun lengri
tíma, þannig að varaaflgjafar RHnet runnu út eftir 20 mín. Sambandsleysi
varði í u.þ.b. 10 mín.
Þriðjudagur 29. október 2002
17:14 beint samband kemst á aftur.
16:58 slitnar beint samband RHnet við NORDUnet. Sennilega vegna slitins
ljósleiðara í Kópavogi. Umferð beint um varasamband hjá Símanum. Virðist
vera sama bilun og þann 24 október sl.
Fimmtudagur 24. október 2002
21:50 Beint samband kemst á aftur. Skv NORDUnet noc var bilun í ljósleiðara
í Reykjavík orsök slits.
18:07 Samband til NORDUnet niðri og umferð um varsamband LÍ. Ekki vitað hvar
vandamálið liggur.
Föstudagur 27. september 2002
16:10 Vefsel komið í gang aftur -- 30Gig í stað 45 áður þar sem ekki tókst
að fá afgreiddan disk í stað þess bilaða.
14:20 Diskur er bilaður í vefseli RHnet (proxy.rhnet.is) - Unnið
er að viðgerð.
Fimmtudagur 20. september 2002
Búast má við truflunum á sambandi RHnet við
NORDUnet n.k mánudag, 23. sept. vegna uppfærslu
á beini í Danmerkurenda sambandsins.
Gert ráð fyrir mest 15mín niðritíma á bilinu
07:00 til 08:00
Sunnudagur 9. september 2002
Samband RHnet við NORDUnet um CANTAT-3 komst á um kl 14:40. Umferð
RHnet er því ekki lengur á varasambandi LÍ um vesturlegg CANTAT-3 heldur
flæðir beint til NORDUnet.
Miðvikudagur 4. september 2002
12:00 Eyða þurfti öllum gögnum af nokkrum diskum á ftp.rhnet.is
vegna diskvillu, villan hefur nú verið leiðrétt og erum við að
sækja eftirtöld söfn aftur:
debian
debian-non-US
NetBSD
Við biðjumst velvirðingar á þessu.
Þriðjudagur 3. september 2002
23:00 Samband RHnet nú á varasambandi um gervihnött.
Síminn tilkynnir að samband um CANTAT-3 verði rofið
um kl 22:00 í kvöld vegna mælinga og undirbúnings
viðgerða.
Samband RHnet flyst þá yfir á varasamband um gervihnött
en búast má við einhverjum truflunum og töfum vegna þessa.
Fimmtudagur 29. ágúst 2002
Eftirfarandi upplýsingar um CANTAT-3 bilun eru frá Landsíma Íslands:
"Nú hefur komið í ljós að Cantat3, sæstrengurinn, er laskaður á milli
Færeyja og Bretlands, en ekki slitinn. Einangrun strengsins er rofin og
útleiðsla er á rafspennu, en ljósleiðararnir sjálfir eru órofnir.
Strengurinn er núna aflfæddur frá báðum endum, þ.e. Kanada og Þýskalandi,
út að biluninni.
Að sögn Teleglobe, mun viðgerðarskip verða sent af stað er það væntanlegt á
staðinn eftir nokkra daga. Þar til viðgerð hefst þá verður hægt að nota
strenginn, en gæðin verða skert. Þegar að viðgerð kemur verður spennan
rofin og detta þá öll sambönd niður um tíma, en þá mun aflfæðing milli
Íslands og Kanada verða sett upp, þannig að vesturleiðin milli Íslands og
N-Ameríka verður í lagi meðan á viðgerð stendur.
Nú er Síminn að flytja internetsambandið af gervitungli yfir á venjubundna
leið á strenginn til Bandaríkjanna. Talsímasamband mun að sinni verða áfram
flutt yfir gervitungl."
Miðvikudagur 28. ágúst 2002
22:23 CANTAT-3 kemur í lag, og samband RHnet til NORDUnet fært af
varasambandi.
Eftirfarandi upplýsingar um bilun eru frá Landsíma Íslands:
"Nú hefur komið í ljós að Cantat3, sæstrengurinn, er laskaður á milli
Færeyja og Bretlands, en ekki slitinn. Einangrun strengsins er rofin og
útleiðsla er á rafspennu, en ljósleiðararnir sjálfir eru órofnir.
Strengurinn er núna aflfæddur frá báðum endum, þ.e. Kanada og Þýskalandi,
út að biluninni.
Að sögn Teleglobe, mun viðgerðarskip verða sent af stað er það væntanlegt á
staðinn eftir nokkra daga. Þar til viðgerð hefst þá verður hægt að nota
strenginn, en gæðin verða skert. Þegar að viðgerð kemur verður spennan
rofin og detta þá öll sambönd niður um tíma, en þá mun aflfæðing milli
Íslands og Kanada verða sett upp, þannig að vesturleiðin milli Íslands og
N-Ameríka verður í lagi meðan á viðgerð stendur.
Nú er Síminn að flytja internetsambandið af gervitungli yfir á venjubundna
leið á strenginn til Bandaríkjanna. Talsímasamband mun að sinni verða áfram
flutt yfir gervitungl."
17:20 Beinivandamál á varasambandi LÍ komin í lag. RHnet í sambandi um
gerfihnött með tilheyrandi RTT (um 600ms).
15:30 Varasamband LÍ um gerfihnött komið upp. RHnet ennþá sambandslaust
vegna beinivandamála. LÍ er að vinna að viðgerð á því.
Bilun í CANTAT-3 verður kl 06:13. Þetta veldur algeru sambandsleysi
RHnet við NORDUnet þar sem varasamaband um Símnet LÍ notar einnig
CANTAT-3. Unnið er að flytja LÍ sambönd á gerfihnött og þegar því
er lokið verður varasamband RHnet virkjað.
Laugardagur 10. ágúst 2002
21:48 Viðgerð lokið.
Vélbúnaðarbilun varð í póstþjóni RHnet
(durinn.rhnet.is) um kl 02:00 í nótt.
Unnið er að viðgerð en ekki vitað henni lýkur.
Fimmtudagur 8. Ágúst 2002
22:10 Umferð kemst á aftur um ljósleiðara.
22:05 Tenging yfir ljósleiðara fer aftur niður, umferð á varasambandi.
19:40 Umferð kemst aftur á um ljósleiðara.
17:43 Tenging yfir ljósleiðara fer niður, umferð á varasambandi.
Möguleiki er á truflunum á umferð við tengipunkt RHnet á Akureyri
vegna viðgerðar á flutningslínu Landsvirkjunnar milli Búrfells
og Sandskeiðs, umferð ætti að færast sjálfvirkt á varaleið
þegar samband rofnar.
Áætlað er að viðgerð muni standa yfir frá kl. 17:00 til 22:00
þriðjudagur 25 júní 2002
17:44 Háskólinn í Reykjavík í samband.
17:37 Ofanleiti í samband aftur.
17:13 Tengipunktur RHnet í Ofanleiti sambandslaus vegna flutninga
hjá Háskólanum í Reykjavik. Búist er við að þetta taki innan við
eina klukkustund. Ekki eru truflanir á öðrum samböndum en við hir.is
þriðjudagur 11 júní 2002
Tenging komst aftur á kl. 05:38.
Tenging RHnet við NORDUnet fór niður kl. 21:48, öll umferð fluttist
sjálfkrafa yfir á varaleið.
Samkvæmt upplýsingum frá Landssímanum var orsakaðist sambandsleysið
af bilun í ljósleiðara, áætlaður viðgerðatími er 2 tímar.
sunnudagur 24 mars 2002
Viðgerð virðist lokið kl 14:00.
Vandamál við tengingar NORDUnet við KPNQwest siðan kl 06:15 í morgun.
Veldur trufulunum á samböndum utan NREN í Evrópu og Ameríku. Unnið
er að viðgerð.
þriðjudagur 19. mars 2002
Tengibúnaður NORDUnet sambands í Tæknigarði endurræstur og línuvilla
þannig löguð. Samband kemst á aftur kl 09:44. Svo virðist sem villa
hafi komið upp í tengibúnaði í Tæknigarði (PA-T3+) meðan verið var
að leita að línubilun.
mánudagur 18. mars 2002
18:45 Hringtenging rakin til Íslands, mælaborð LÍ rekur bilun til Tæknigarðs.
17:45 TeleDanmark hefur komist fyrir bilun í sambandi en tenging kemst samt
sem áður ekki á. Svo virðist sem hringtenging sé á línunni á móti DK.
14:45 T3 samband við NORDUnet í Danmörku ennþá niðri.
Bilun er ekki á Íslandi eða hjá Landsímanum heldur virðist liggja í Danmörku,
en ekki hjá UNI-C.
laugardagur 16. mars 2002
Vandamál virðist liggja í Danmörku ... Tele-Danmark rekur
bilun til UNI-C. Ekki næst í UNI-C NOC.
Samband til NORDUnet slitnar kl 06:06, ástæður ókunnar, en KTHNOC
er að kanna málið. Umferð um varasamband hjá Símanum.
miðvikudagur 27. febrúar 2002
Skipt um beini í Ofanleiti og samband kemst á um kl 11:00.
Alvarleg vélbúnaðarbilun í beini orsök sambandsslits.
Tengipunktur RHnet við Ofanleiti í Reykjavík verður sambandslaus
kl 19:22 á þriðjudag. Við það rofnar samband við Háskólann í Reykjavík.
mánudagur 25. febrúar 2002
17:20 Samband við NORDUnet kemur upp aftur, og umferð flyst af varaleið.
Samband við NORDUnet slitnar kl 17:00 vegna breytinga í Danmörku. Samband
um varaleið á meðan.
mánudagur 11. febrúar 2002
Samband við AS2603 kemst á kl 17:12. Flutningi lokið.
Breyting verður gerð á sambandi RHnet við NORDUnet milli kl 17:00 og 18:00
i dag. Búast má við smávægilegum truflunum á útlandasambandi RHnet.
sunnudagur 13. janúar 2002
00:34 14. jan Samband kemst á aftur.
Samband RHnet við umheiminn slitið síðan kl 23:26. Svo virðist
sem CANTAT-3 sé slitin þar sem varasamband RHnet um Simnet til
USA er einnig í sundur. Þá virðast aðrar internetþjónustur á Íslandi
einnig sambandslausar eins og er.
mánudagur 29. október 2001
Samband við NORDUnet slitnar kl 14:15 vegna bilunar í
Danmörku. Eðli bilunar óþekkt en samband kemst á aftur
um kl 14:20. Varasambönd ekki virkjuð þar sem samband
við næsta hopp í Danmörku var uppi.
þriðjudagur 28. ágúst 2001
Diskar vefþjóns settir í varavél, vefþjónn aftur virkur um kl 10:00.
mánudagur 27. ágúst 2001
Vegna minnisbilunar er vefþjónn RHnet óvirkur frá kl 19:29.
föstudagur 25. maí 2001
Samband kemur aftur á kl 16:53. Bilun milli Lyngby og Blabjerg í
Danmörku. Tele Danmark hefur ekki gefið upp eðli bilunar.
Samband til NORDUnet slitnar kl 08:41. Umferð á varasambandi hjá
LÍ. Ekki liggja fyrir upplýsingar um ástæður bilunar.
miðvikudagur 9. maí 2001
Bilun í BGP rútun á Darenet (NORDUnet í Danmörku) olli umferðarþurrð
til og frá RHnet frá 10:00 til 10:30. Varasmabönd ekki virkjuð þar
sem tenging fór ekki niður.
þriðjudagur 17. apríl 2001
Truflun í innri tengingum RHnet frá kl 16:42 til 16:53 vegna bilunar í
ljósleiðarasnúru milli tækja í vélasal RHnet.
þriðjudagur 13. mars 2001
Bilun í beini hjá UNI-C í Danmörku olli sambandsleysi milli kl 12:40 og 14:00
í dag. Umferð ekki beint sjálfvirkt á varasamband þar sem bilun var í raun í
hluta af sambandi Danmerkur við umheiminn.
webmaster@rhnet.is