Grunnþjónusta á RHnet

Aðilum tengdum RHnet býðst eftirfarandi grunnþjónusta:

  1. Nafnaþjónusta. Skilgreina má nafnþjóna RHnet sem aukaþjóna ("slave", "secondary") þjóna fyrir lén tengdra aðila. Sendið beiðni um slíkt til 'hostmaster@rhnet.is'

  2. MX varaleið. Leyfilegt er að skilgreina póstþjón RHnet sem viðkomugeymslu ("MX fallback") fyrir tölvupóst RHnet aðila. Vinsamlega látið 'postmaster@rhnet.is' vita ef þið hyggist nýta ykkur þetta.

  3. Klukkuþjónustua. Notið 'time0.rhnet.is' sem NTP klukkuþjón.


Ofangreint er innifalið í grunngjöldum til RHnet. Önnur þjónusta sem RHnet kann að setja upp verður væntanlega gjaldfærð sérstaklega.